Reiknistofa bankanna keypti árið 2012 hluta af upplýsingafyrirtækinu Teris og hugbúnaðarlausnum þess. Starfsmenn flestir sem þá unnu í Teris fluttu sig um set yfir til RB og aðlöguðu hugbúnaðinn að umhverfi RB. Kaupin á Teris voru liður í að efla þjónustuframboð félagsins og breikka þá þekkingu sem félagið bjó yfir.
Bankarnir fengu 2017 samþykki Samkeppniseftirlitsins að reka sameiginlegt seðlaver. Reiknistofa bankanna yfirtók þann rekstur árið 2022.