Jóna Jakobsdóttir var meðal fyrstu starfsmanna RB frá 1974, framan af sem ritari en síðar sem skrifstofustjóri RB.
Ritgerðin er lokaverkefni til MIS-gráðu í upplýsingafræði og er vistuð í Skemmunni, safni námsritgerða og rannsóknarita - Hér
Titill: Hvernig miðlar fyrirtæki upplýsingum og þekkingu? Megindleg rannsókn á notkun Wiki
Námsstig: Meistara
Höfundur: Jóna Jakobsdóttir 1950-
Leiðbeinandi: Ágústa Pálsdóttir 1955-
Efnisorð:
- Upplýsingafræði
- Megindlegar rannsóknir
- Samfélagsmiðlar
- Upplýsingamiðlun
- Þekkingarstjórnun
- Fyrirtæki
Útdráttur:
Miðlun upplýsinga og þekkingar innan fyrirtækis er kjarni þessarar ritgerðar. Gerð var megindleg rannsókn á notkun Wiki. Markmið með rannsókninni er að varpa ljósi á notkun Wiki í starfsemi fyrirtækis með því kanna viðhorf starfsmanna til ýmissa atriða. Spurt var hversu oft efni er bætt við og endurnýjað í Wiki ásamt fleiru og sett í samhengi við upplýsingahegðun, upplýsingamenningu, samstarf og þekkingarmiðlun. Kannað var viðhorf, hvernig gengur að finna upplýsingar og þekkingu í Wiki og nokkur önnur atriði sem mögulega kunna að reynast hindranir. Auk þess var kannað viðhorf til samvinnu og að deila upplýsingum og þekkingu. Rafræn könnun var send til allra starfsmanna fyrirtækis sem notar Wiki í starfsemi sinni og var svarhlutfall 83% (n=152). Niðurstöður leiddu í ljós fremur jákvæð viðhorf til flestra þátta sem spurt var um. Stórum hluta þátttakenda finnst þó ganga fremur illa að finna upplýsingar í Wiki. Í ljós kom tölfræðilega marktækur munur eftir aldri þátttakenda. Helstu niðurstöður sýna að í hópi þeirra sem fæddir eru fyrir 1970 finnst hlutfallslega fleiri þátttakendum það ganga illa að finna upplýsingar í Wiki á meðan hlutfallslega fleiri af þeim sem fæddir eru 1970 eða síðar finnst þeim ganga vel að finna upplýsingar. Þegar þrír þættir eru skoðaðir í samhengi, hvort notkun á Wiki bæti starfshætti, auki samstarfshæfni og auki nýtingu á þekkingu, þá búast 77,6% þátttakenda við því að notkun þeirra á Wiki hafi hjálpað fyrirtækinu á einhvern hátt. Aftur á móti búast 22,4% þátttakenda ekki við því að svo sé. Rannsóknin var gerð að hluta til með hliðsjón af erlendum rannsóknum.